Við leitum að liðsauka í Véla og tækjadeildina okkar
Deila frétt
Starfsheiti: Viðgerða, járna- og tækjamaður
Deild: Véla- og tækjadeild / Lager
Staðsetning: Akureyri
Starfið:
Að tryggja að tæki, vélar og búnaður fyrirtækisins séu í góðu rekstrarástandi, sinna almennu viðhaldi, járnsmíði og viðgerðum, auk þess að styðja lagerrekstur og önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum.
Helstu verkefni:
Viðhald og viðgerðir
- Greining bilana og framkvæmd viðgerða á tækjum, vélum og búnaði fyrirtækisins.
- Reglubundið þjónustueftirlit, smurningar og fyrirbyggjandi viðhald.
- Skipti á slit- og varahlutum.
- Halda vinnusvæði, verkfærum og verkstæði í góðu ástandi.
- Skrá viðgerðir, bilanir og þjónustu þegar við á.
Lager og rekstur
- Aðstoð við lagerstjóra með dagleg verkefni.
- Móttaka og afhending vara, tiltekt og almenn umhirða lagers. (sjaldgæft)
- Flutningur á efni, búnaði og tækjum innan fyrirtækis.
- Önnur tilfallandi störf tengd lager og rekstri.
Akstur og notkun tækja
- Sinna akstri og notkun vinnuvéla eða annarra tækja þegar þörf krefur.
- Aðstoða við verkefni þar sem tæki eru nýtt í framkvæmdum eða flutningum.
Hæfniskröfur
- Reynsla af viðgerðum á vinnuvélum, bifreiðum eða sambærilegum búnaði kostur.
- Almennt verkvit og sjálfstæð vinnubrögð.
- Vinnuvélaréttindi og meira próf kostur.
- Lipurð í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf.
- Geta til að vinna fjölbreytt verkefni og bregðast hratt við breyttum aðstæðum.
Eiginleikar
- Dugnaður og áreiðanleiki.
- Lausnamiðuð hugsun.
- Sveigjanleiki og hæfni til að sinna fjölbreyttum verkefnum.
- Sjálfstæði og skipulagshæfni.
Annað
Starfið er fjölbreytt og krefst þess að viðkomandi geti gengið á milli verkefna hjá viðhaldsstjóra og lagerstjóra eftir álagi og þörfum hverju sinni.
Umsóknarfrestur til 19. maí 2026. Allar nánari upplýsingar veitir skrifstofu- og mannauðsstjóri Húsheildar Hyrnu; Alma Dröfn Benediktsdóttir alma@husheildhyrna.is S: 460-2600