Nýbygging Jarðbaðanna við Mývatn
Verk í vinnslu
Upplýsingar
Aðalverktaki:
Húsheild/Hyrna
Áætluð verklok:
2025
Tegund:
Sérhæfð hönnunarverkefni
Staða:
Verk í vinnslu
Lýsing

Húsheild/Hyrna byggir nýja glæsilega aðstöðu Jarðbaðanna við Mývatn. Byggingin verður rúmlega 2600 fermetrar með veitingarými, aðstöðu til fundahalda, rúmri búningsaðstöðu ásamt einkaklefum, slökunarrými og nuddaðstöðu svo fátt eitt sé nefnt. Aðstaða fyrir gesti verður öll á einni hæð og mun baðlónið halda sinni lögun en verður tengt og aðlagað að nýbyggingunni.

Framkvæmdir hófust á vormánuðum 2023 og eru áætluð verklok fyrri hluta árs 2025.