Fyrstu kaupendur fengu lykla afhenta
Deila frétt
Eftir nokkrar tafir á afhendingu voru lyklar af fyrstu íbúðinni í Hulduholti afhentir nýjum eigendum í dag.
Hjónin Júlíus Björgvinsson og Jónasína Arnbjörnsdóttir tóku við lyklunum af Ólafi Ragnarssyni eiganda Húsheildar/Hyrnu. Við óskum nýjum eigendum innilega til hamingju með nýja heimilið.
Hulduholt 2 er fjölbýli á þremur hæðum með 16 íbúðum ásamt bílakjallara. M/ Studio sá um alla innanhúshönnun og er mikið lagt í efnisval, frágang og hljóðvist og er útsýnið úr íbúðunum einstakt. Allar innréttingar, innihurðar og gluggar eru framleidd á verkstæði okkar á Akureyri.
Nánari upplýsingar um íbúðirnar hægt að nálgast hjá okkur.