Starfsmaður á lager
Deila frétt
Starfsheiti: Starfsmaður á lager
Deild: Véla- og tækjadeild / Lager
Staðsetning: Akureyri
Starfið er fjölbreytt og felur í sér að stuðla að góðu skipulagi og skilvirkum rekstri á lager fyrirtækisins.
Helstu verkefni
- Vinna í náinni samvinnu við lagerstjóra
- Sækja og afhenda verkfæri, tæki og búnað milli verkstaða og starfsstöðva
- Sjá um almenna tiltekt, uppröðun og skipulag á lager
- Aðstoða við birgðaeftirlit og talningu
- Skrá móttöku, afhendingar og aðrar upplýsingar í tölvukerfi fyrirtækisins
- Sinna öðrum tilfallandi verkefnum tengdum lager- og tækjadeild
Hæfniskröfur
- Góð tölvukunnátta
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð samskiptafærni
- Almenn þekking á verkfærum og búnaði er kostur
- Gilt B-ökuréttindi skilyrði
- Lyftararéttindi eru kostur
Umsóknarfrestur til 22. júní 2026, nánari upplýsingar um starfið veitir lagerstjóri í síma: 661-5059 eða á netfang astthor@husheildhyrna.is
Umsóknir skulu sendar á skrifstofu- og mannauðsstjóra; alma@husheildhyrna.is S: 460-2600.